Herbs de Provence – bakaður fetaostur með tómötum og kryddjurtum
Aug 19
1 min read
Herbs de Provence er klassísk kryddjurtablanda innblásin af Suður-Frakklandi. Ilmandi kryddjurtirnar henta vel með grænmeti, fiski og kjöti og eru sérstaklega góðar í einfalda ofnrétti.

Hráefni
200 g fetaostur í heilu stykki
250 g kirsuberjatómatar
1 kúrbítur
2 hvítlauksgeirar
1–2 tsk. Herbs de Provence
2–3 msk. ólífuolía
Svartur pipar
Gott brauð til að bera fram með
AðferðSetjið fetaostinn í miðju á eldföstu móti. Dreifið tómötum og niðurskornum kúrbít í kring.
Hellið ólífuolíu yfir og kryddið með Herbs de Provence, hvítlauk og svörtum pipar. Bakið við 200°C í um 20–25 mínútur eða þar til tómatarnir eru mjúkir og fetaosturinn farinn að taka lit.
Berið fram heitt með góðu brauði.

Comments