top of page
Pottagaldrar - Rebrand-05.png

Shish Taouk – kjúklinga-kebab

Aug 13
1 min read

Updated: Aug 19

Bragðmikil kryddblanda innblásin af arabískri matargerð. Sérlega góð til að kryddleggja kjúkling, en hentar einnig með lambakjöti, fiski og í grænmetis- og baunarétti.


Hráefni

  • Kjúklingabitar

  • 1–2 msk. Arabískt kjúklingakrydd

  • ½ tsk. svartur pipar

  • ½ tsk. salt, má sleppa

  • 1 tsk. Ítölsk hvítlauksblanda eða 1–2 ferskir hvítlauksgeirar

  • ca. 75 ml ólífuolía

  • 1–2 tsk. tómatpuré

  • Safi úr 1 sítrónu


Aðferð

Blandið Arabísku kjúklingakryddi, pipar, salti, hvítlauk, ólífuolíu, tómatpuré og sítrónusafa saman.


Setjið kjúklinginn í marineringuna og látið standa í kæli yfir nótt.


Takið kjúklinginn úr marineringunni og grillið á grilli eða pönnu þar til hann er fulleldaður. Penslið kjúklinginn reglulega með marineringunni á meðan hann grillast.

 
 
 

Comments


Staðsetning:

John Lindsay ehf.
Klettagörðum 23
104 Reykjavík

Opnunartími:

Mánudag - fimmtudags 08:00 - 16:00

Föstudag 08:00 - 15:00

Þjónustuver 09:00 - 14:00

Hafa samband:

S. 533-2600

lindsay@lindsay.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page