top of page
Pottagaldrar - Rebrand-05.png

Herbs de Provence – ofnbakaður lax með sítrónu og kryddjurtum

Aug 19
1 min read

Herbs de Provence er klassísk kryddjurtablanda innblásin af Suður-Frakklandi. Ilmandi kryddjurtirnar henta vel með grænmeti, fiski og kjöti og eru sérstaklega góðar í einfalda ofnrétti.

Hráefni

  • 600 g lax

  • 1–2 msk. Herbs de Provence

  • 2 hvítlauksgeirar

  • 1 sítróna

  • 2 msk. ólífuolía

  • Salt og pipar

  • Kirsuberjatómatar

    Aðferð

Leggið laxinn í eldfast mót og dreifið Herbs de Provence, hvítlauk, ólífuolíu og sítrónusafa yfir. Setjið tómata í kringum laxinn og bakið við 190°C í um 15–20 mínútur, eftir þykkt. Berið fram með kartöflum eða fersku salati.

Comments


Staðsetning:

John Lindsay ehf.
Klettagörðum 23
104 Reykjavík

Opnunartími:

Mánudag - fimmtudags 08:00 - 16:00

Föstudag 08:00 - 15:00

Þjónustuver 09:00 - 14:00

Hafa samband:

S. 533-2600

lindsay@lindsay.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page