Karrý de lux – rækjukarrý með kókosmjólk og límónu
- Aug 19
- 1 min read
Karrý de lux er milt en ilmríkt karrý með ristuðum fræjum og kryddjurtum. Það hentar sérstaklega vel með fiski og rækjum, en einnig með kjúklingi, kjöti, baunum og grænmeti. Viljir þú meiri hita má bæta smá cayennepipar við.

Hráefni
400 g risarækjur
1½ msk. Karrý de lux
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
1 msk. tómatpuré
1 dós kókosmjólk
1 rauð paprika
Safi úr ½ límónu
Olía til steikingar
Salt eftir smekk
Ferskt kóríander, má sleppa
Aðferð
Steikið lauk og hvítlauk í olíu þar til laukurinn mýkist. Bætið Karrý de lux út í og steikið í stutta stund til að draga fram ilminn.
Bætið papriku og tómatpuré út í og því næst kókosmjólkinni. Látið malla í nokkrar mínútur. Setjið rækjurnar síðast út í og eldið þar til þær eru tilbúnar.
Kreistið límónusafa yfir og berið fram með hrísgrjónum og fersku kóríander.

Comments