Shish Taouk – kjúklinga-kebab
- Aug 13
- 1 min read
Updated: 7 days ago
Bragðmikil kryddblanda innblásin af arabískri matargerð. Sérlega góð til að kryddleggja kjúkling, en hentar einnig með lambakjöti, fiski og í grænmetis- og baunarétti.

Hráefni
Kjúklingabitar
1–2 msk. Arabískt kjúklingakrydd
½ tsk. svartur pipar
½ tsk. salt, má sleppa
1 tsk. Ítölsk hvítlauksblanda eða 1–2 ferskir hvítlauksgeirar
ca. 75 ml ólífuolía
1–2 tsk. tómatpuré
Safi úr 1 sítrónu
Aðferð
Blandið Arabísku kjúklingakryddi, pipar, salti, hvítlauk, ólífuolíu, tómatpuré og sítrónusafa saman.
Setjið kjúklinginn í marineringuna og látið standa í kæli yfir nótt.
Takið kjúklinginn úr marineringunni og grillið á grilli eða pönnu þar til hann er fulleldaður. Penslið kjúklinginn reglulega með marineringunni á meðan hann grillast.

Comments