Töfrakrydd – stökkar parmesan-kartöflur
- Aug 19
- 1 min read
Töfrakrydd er alhliða kryddblanda sem hentar vel þegar vantar aukna bragðfyllingu í matinn. Það má nota með kjöti, fiski og grænmeti eða í hversdagslega rétti og meðlæti.

Hráefni
700 g litlar kartöflur
1–2 msk. Töfrakrydd
2 msk. ólífuolía
50 g parmesan
2 hvítlauksgeirar
Fersk steinselja, má sleppa
AðferðSjóðið kartöflurnar þar til þær eru rétt orðnar mjúkar. Setjið þær á bökunarplötu og kremjið hverja kartöflu létt með botninum á glasi.
Penslið með ólífuolíu og stráið Töfrakryddi, hvítlauk og parmesan yfir. Bakið við 220°C þar til kartöflurnar eru stökkar og gullinbrúnar.
Stráið ferskri steinselju yfir og berið fram sem meðlæti eða með góðri ídýfu.

Comments