top of page
Basilikum
Basilikum er einær kryddjurt, ræktuð um allan heim. Bragð hennar er frekar beiskt, en sum afbrigði eru midari og sætari. Jurtin hefur verið blönduð við neftóbak og olía sem unnin er úr jurtinni er oft notuð í ilmvötn. Eitt afbrigði jurtarinnar gegndi heilögu hlutverki við eiðtöku hjá Indverjum til forna.
Basilikum kryddið er ómissandi í tómatrétti og grænmetisrétti. Í hófi á það við marga kjöt- og fiskrétti, s.s. fiskpaté, það er notað í kryddsmjör, á pizzuna eða í pizzu og pastasósur.
Innihaldslýsing:
hreint basilikum, skorið
Fáanlegt í eftirfarandi verslunum:
Án salts - Vegan - Ketó - Án aukaefna
bottom of page