Arabískar nætur – líbanskar lambakjötbollur með jógúrtsósu
Aug 19
1 min read
Arabískar nætur er svokölluð sjö krydda blanda, eða Lebanese Seven Spice, sem á rætur í líbanskri og miðausturlenskri matargerð. „Sjö krydd“ vísar til hefðar þar sem nokkur hlý og ilmandi krydd eru sameinuð í eina fjölhæfa blöndu

Hráefni
500 g lambahakk
1½–2 msk. Arabískar nætur
1 lítill laukur, fínsaxaður
2 hvítlauksgeirar
1 egg
Salt eftir smekk
Olía til steikingar
Jógúrtsósa
2 dl grísk jógúrt
½ sítróna
1 hvítlauksgeiri
Salt og pipar
Blandið hráefnunum í kjötbollurnar saman og mótið litlar bollur. Steikið á pönnu eða bakið í ofni þar til þær eru fulleldaðar. Blandið jógúrtsósunni saman og berið fram með bollunum, flatbrauði og fersku salati.

Comments