top of page

Lambagúllas á spjóti


Sólin hefur ákveðið að kíkja á okkur og þá er tilvalið að kveikja upp í grillinu! Í þessari uppskrift notum við Víkinga grill & steikarolíuna okkar sem hentar einstaklega vel með grillmat. Rosalega einföld uppskrift sem inniheldur smá föndur við að raða á spjótin. Í heildina tekur þetta um 45 mínútur og dugar fyrir þrjá til fjóra.

Innihald:

- 1200gr. lambagúllas marinerað með Víkingaolíu(rúmlega 3/4 dl.) í 4-6 klst. - 2 rauðar paprikur - Hálft box af sveppum - 2 hvítir laukar

Aðferð:

Öllu hráefninu er þrætt á spjót - hægt er að nota grænmeti að eigin vali. Spjótunum er skellt á grillið og mikilvægt er að snúa þeim reglulega.

Við mælum svo með frískandi jógúrtsósu/hvítlaukssósu til hliðar ásamt pítubrauði/naan brauði og smá salati.

Athugið➡️ Mikilvægt að hrista vel upp í olíunum fyrir notkun!

bottom of page